Öxarfjörður

Moya er vefumsjónarkerfi frá Stefnu ehf.

Ferðamál

Öxarfjörður er djúpur og nær eyja- og skerjalaus flói á milli Tjörness og Melrakkasléttu. Við botn Öxarfjarðar eru flatir sandar, framburður Jökulsár á Fjöllum. Upp af láglendinu rísa nokkur ein-stök og formfögur fjöll. Héraðið við Öxarfjörð er hluti af virku gosbelti sem nær allt suður í Vatnajökul. Lengsta gossprunga landsins, um 70 km að lengd, liggur frá Mývatnsöræfum og norður fyrir Rauðhóla á Öxarfjarðarheiði, gengur hún þvert á Jökulsárgljúfur rétt fyrir neðan Hafragilsfoss og má þar sjá bergganga í gljúfurbarminum. Jökulasá er mesta vatnsfall sem rennur til sjávar á Norðurlandi og teljast gljúfur hennar stærstu og hrikalegustu árgljúfur á Íslandi, um 25 km löng og allt að 120 m á dýpt. Austan við Jökulsá er margt fagurra staða, svo sem Forvoð, Jökulsárgljúfur og Dettifoss en vestan árinnar eru Ásbyrgi, Hólmatungur og Hljóðaklettar o. m.fl. Á Melrakkasléttu er nyrsta byggð á Íslandi utan Grímseyjar og nyrsti oddi landsins, Hraunhafnartangi liggur við heimskautsbaug. Með vestanverðri Melrakkasléttu rísa Leirhafnarfjöll og Rauðinúpur. Nyrst, mun hann vera eldfjall frá því seint á ísöld og er gígskál ofan í hann. Af Rauðanúp er víðsýnt og þar, sem og víðar í héraðinu, gengur sólin ekki til viðar um sumarsólstöður. Flóra svæðisins er allfjölbreytt og nokkuð er þar af tegundum sem annars teljast ekki algengar. Fuglalíf er fjölskrúðugt og á sandinum er m.a. eina skúmsvarpið á Norðurlandi. Nokkurt æðavarp er á Melrakkasléttu og silungur er í flestum vötnum. Stórkostleg nátturufegurð er í Öxarfirði og fugla og annað dýralíf ákaflega fjölbreytt.

Nýjustu fréttir

Heimsóknir

Í dag: 0
Samtals: 11881

Veðrið

Flatey á Skjálfanda
S 4 m/s
11 °C
Möðrudalur
SSA 3 m/s
10 °C
m/s
°C
Húsavík
ASA 4 m/s
11 °C
Húsavíkurhöfn
m/s
°C
Mánárbakki
SSA 7 m/s
11 °C
Fontur
SSA 9 m/s
9 °C
Mývatn
ANA 2 m/s
8 °C
Ásbyrgi
SSA 5 m/s
12 °C
Hálsar
SA 6 m/s
10 °C
Möðrudalsöræfi II
SSA 5 m/s
8 °C

Færð á vegum (N)
Færð á vegum (NA)
Skoða veðurkort
moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning