Fréttir
Kertaljósatónleikar á Kópaskeri

Fimmtudaginn 3. desember heldur hljómsveitin S.O.S. frá Húsvík kertaljósatónleika í skólahúsinu á Kópaskeri og hefjast þeir kl. 20:00. Flutt verða þekkt dægurlög, innlend og erlend sem flest hafa verið færð í nýjan og notalegan búning. Tónleikarnir eru liður í árlegri tónlistarveislu sem sveitarfélagið Norðurþing styrkir. Sérstök gestasöngkona á tónleikunum verður Halla Marín Hafþórsdóttir
Tónlistarveisla þessa árs er nokkuð seinna á ferðinni en undanfarin ár þar sem hún hefur yfirleitt verið haldin í ágústmánuði ár hvert undanfarin 10 ár. Sú nýbreyttni hefur verið höfð á að þessu sinni að halda tónleika í öllum þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins Norðurþings og eru tónleikarnir á Kópaskeri lokahnykkurinn á þessu verkefni.
Aðgangseyrir á tónleikana er 1000 kr. fyrir 14 ára og eldri en 500 krónur fyrir börn yngri en 14 ára. Athugið að ekki verður hægt að greiða með greiðslukorti.
Til baka



