Öxarfjörður

Moya er vefumsjónarkerfi frá Stefnu ehf.

Kópasker

Kópasker, eini þéttbýlisstaðurinn við Öxarfjörð stendur við miðja austurströnd flóans. Þorpið er lítið sjávarþorp með um 130 íbúa. Þorpið dregur nafn sitt af skerinu sem það stendur við, en þar má gjarnan sjá seli spóka sig þegar stillt er í veðri. Kópasker varð löggildur verslunarstaður um 1880 en byggð hófst að myndast þar upp úr 1910. Kópasker varð talsvert illa úti í jarðskjálftanum í janúar 1976, á tímum Kröfluelda, og mörg hús skemmdust í hörðustu skjálftunum. Merkar jarðfræðiminjar, þar sem eru setlög með steingervingum, er að finna í Röndinni sem er sjávarkamburinn þar sem mörg atvinnufyrirtæki á Kópaskeri standa.
Fjallalamb h.f. er staðsett á Kópaskeri, þar er heilsugæslustöð, verslun, skóli og vélaverkstæði.
 

Gisting á Kópaskeri:

Gistiheimilið Akurgerði 7. Farfuglaheimili. Uppl. hjá Benedikt  Síma 465-2314.

2 fullbúnar orlofsíbúðir. Uppl. hjá Kristbjörgu. Sími 465-2122 og 465-2106.

Mjög gott tjaldsvæði er á Kópaskeri, með sturtu og rafmagni. Frítt er að tjalda þar.

IMG_2340.JPG

Heimsóknir

Í dag: 4
Samtals: 36325

Veðrið

Flatey á Skjálfanda
SA 13 m/s
13 °C
Möðrudalur
SSA 5 m/s
10 °C
Raufarhöfn
A 5 m/s
2 °C
Húsavík
SA 7 m/s
15 °C
Húsavíkurhöfn
m/s
°C
Mánárbakki
SA 8 m/s
15 °C
Fontur
SA 12 m/s
9 °C
Mývatn
ASA 8 m/s
12 °C
Ásbyrgi
SSA 7 m/s
15 °C
Hálsar
SA 7 m/s
13 °C
Möðrudalsöræfi II
SA 9 m/s
9 °C

Færð á vegum (N)
Færð á vegum (NA)
Skoða veðurkort
moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning